18.11.2008 | 09:49
Elsku Hrafnhildur...
Elsku Hrafnhildur Lilja mín.
Ég sakna þín svo mikið elsku systir mín. Ég gæfi svo mikið fyrir að fá að sjá þig einu sinni enn, fá að knúsa þig og segja þér hversu mikið ég elska þig. En ég veit að þú veist nú þegar hvað ég elska þig mikið... og ég veit að þú vakir yfir okkur.
Ég er svo heppin að hafa átt svona yndislega systur. Þetta er búinn að vera svo erfiður tími, það erfiðasta sem ég hef nokkurn tíman gengið í gegnum! Þetta er ekkert að verða auðveldara, rannsókninni ekki lokið og enginn á bak við lás og slá fyrir að taka lífið þitt frá þér! En ég vona af öllum lífsins kröftum að sá sem gerði þér þetta, fái sína refsingu og rúmlega það!!
Nú eru jólin að nálgast, og það verður sárt að sjá þig ekki og að hafa þig ekki hjá okkur á jólunum. Það var alltaf svo gaman þegar við systurnar vorum allar saman. Það er erfitt að hlakka til jólanna þegar svona stóran part vantar af manni. En ég ætla samt að gefa Líneyju Mist góð jól og reyna að njóta jólanna með henni og fjölskyldunni.
Það eru svo margir sem sakna þín sárt, þú áttir svo marga góða vini og fjölskyldu sem elskuðu þig.. eða réttara sagt elska þig, við hættum aldrei að elska þig!
En einhvernveginn heldur maður áfram, sumir dagar erfiðari en aðrir. Ég reyni að hugsa um hvað þú hefðir viljað... og það er að við myndum halda áfram og reyna finna hamingjuna á ný! Ég er að reyna mitt besta, hugsa vel um Líneyju Mist og fjölskylduna okkar. Það má ekki gleyma að huga vel að þeim sem eftir eru.
Það er stundum óraunverulegt að þú sért dáin, að ég eigi aldrei eftir að sjá þig aftur. Ég skil ekki hvernig þetta gat gerst. Maður hefði haldið að svona kæmi aldrei fyrir neinn sem maður þekkti, en nú kom þetta fyrir systur mína sem átti þetta engan veginn skilið! Við sem eftir erum, sitjum eftir með brotið hjarta og reiðin ólgar inní manni.
En elsku Hrafnhildur, ég ætla að halda áfram að vera dugleg. Ég veit að þú hefðir viljað það. Ég sé þig svo í paradís, þegar minn tími kemur :o)
Viltu passa mömmu og pabba, Alvildu, ömmu Lilju, Laugu, Líneyju Mist og okkur öll. Við pössum að minning þín lifi að eilífu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.10.2008 | 00:52
Láttu drauma þína rætast!!
Hún Rósa mín benti mér á þetta myndband. Myndbandið hafði djúp áhrif á mig, góð áhrif. Það minnir mann á að lifa lífinu og láta drauma sína rætast, þennan stutta tíma sem maður fær hér á jörð.
Hún Hrafnhildur, yndislega systir mín lét drauma sína rætast, hún gerði meira á sinni stuttu ævi en margur gerir á 80 árum! Hún snerti fleiri hjörtu en margir gera á 100 árum. Hún elti drauma sína, lét ekki segja sér að eitthvað gengi ekki upp...hún lifði einsog enginn væri morgundagurinn.
Munum að lifa hvern dag einsog hann væri okkar síðasti,við vitum ekki hvað gerist á morgun..við skulum þessvegna njóta hvers dags og gera sem best úr honum. Verum þakklát fyrir það sem við eigum, förum vel með fólkið í kringum okkur og látum þau reglulega vita hversu mikils virði þau eru. Við skulum ekki pirra okkur á smámunum sem skipta engu máli, notum ekki of mikla neikvæða orku. Munum frekar að kærleikurinn er það sem skiptir máli í þessum heimi, að vera góð við hvort annað. Lífið er alltof stutt til þess að vera með leiðindi.
Systir mín kenndi mér að trúa á sjálfa mig og láta drauma mína rætast, sama hvað verður í vegi fyrir mér. Ég mun alltaf sakna Hrafnhildar Lilju og mun aldrei sætta mig við að hún hafi farið á þennan hátt, en þessi elska á sérstakan stað í hjarta mínu og ég á svo margar góðar minningar um hana. Hún verður alltaf mín fyrirmynd og hún verður stolt af mér þegar minn tími kemur. Hún mun sjá að ég gerði góða hluti í lífinu og elti drauma mína uppi.
Munið að vera góð við hvort annað, gerið gott úr hverjum einasta degi! Láttu fólk finna að það er gott að þú ert til.
Ég kveð með harm í hjarta, en með smá brosi líka... brosi yfir því að hafa átt þessa yndislegu systur mína og að ég hafi fengið að læra margt gott af henni. Brosi vegna þess að ég fyllist stolti yfir að hafa átt hana sem systur, þrátt fyrir alltof stuttan tíma með henni. Ég brosi smá vegna þess að það er ekki annað hægt en að brosa, því að þegar ég sé mynd af henni í huganum, þá er hún brosandi út að eyrum :)
Ég elska þig Hrafnhildur mín, fallega Liljan mín.
Hér er myndbandið:
http://www.youtube.com/watch?v=TNWg5DlWVa8
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.10.2008 | 00:23
......
Þegar ég er alveg að springa úr reiði og sorg finnst mér ég verða að blogga... kannski til að losa um pirringinn.
Ég get ekki einu sinni grátið afþví ég er svo reið og pirruð!
Ég get ekki skilið hvernig einhver gat gert systur minni þetta!
Hún var svo yndisleg við allt og alla, og mér finnst svo hræðilegt að hún hafi upplifað þennan hrylling og að lífið hafi verið tekið frá henni!
Hún var lífsglaðasta manneskja sem ég þekkti, hún hreinlega elskaði lífið og var mjög sjálfstæð.
Ég mun aldrei skilja afhverju þetta gerðist og ég mun aldrei sætta mig við þetta.... ALDREI!!!
Mér finnst ég svo vanmáttug að geta ekki fengið Hrafnhildi til baka!
Ég get ekki hugsað mér að fara í gegnum allt lífið án hennar, en neyðist þó til að gera það.
Og þessir andskotans fréttamenn, þeir hafa ekki gert neitt annað en að slá okkur með blautri tusku í andlitið... aftur og aftur!!!
Þvílíkur viðbjóðslegur fréttaflutningur og smáatriði!
Svo ég tali nú ekki um fjölmiðlana þarna útí Dóminiska!!!! Þetta lið þarna úti er greinilega vel steikt í hausnum!
Mér finnst ömurlegt að það sé vetur og að ég geti ekki gert leiðið hennar fallegt fyrr en í vor! Mér finnst hræðilegt að geta ekkert gert fyrir hana. En ég reyni þó að gera skemmtilega hluti með dóttur minni og ég reyni að halda geðheilsu... ég veit að Hrafnhildur vill að ég haldi lífinu áfram og að ég njóti þess. Ég reyni það.
Ég fór í vinnu í gær og það var bara fínt, verð að vinna annan hvern dag í tvær vikur og svo veit ég ekki meir. Er s.s. í afleysingum fyrir eina núna.
Við Danni fórum labbandi að sækja Líney á leikskólann í dag, fórum svo uppá gullatún og renndum okkur nokkrar ferðir... það var rosa gaman. Gáfum svo greyið öndunum brauð!
Fórum svo í göngutúr í öllum snjónum, það er allt á kafi.
Ég er svo þakklát fyrir að eiga þessa yndislegu stelpu, og auðvitað Danna líka. Líney Mist er sko ljósið í myrkrinu og hefur gert margt gott fyrir alla í fjölskylduna!
Góða Nótt Hrafnhildur mín, ég elska þig mest.
Bloggar | Breytt 8.1.2009 kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.10.2008 | 01:13
..
Líney Mist í skónum hennar Hrafnhildar, tekið í des ´07
Hrafnhildur tók þessa mynd af Líney með rjúpuna góðu.. Líney með dauða/frosna rjúpu sem hún náði sér í úr frystinum... bara fyndið kvöld.
Ekkert að frétta svosem, fór í vinnu í dag.. það var alveg ágætt. Er svo búin að þrífa og gera fínt í kotinu í kvöld...fínt að þrífa þegar maður er pirraður!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2008 | 02:11
If Tears Could Build A Stairway
If tears could build a stairway
And memories were a lane
We could walk right up to heaven
And bring you back again.
Few farewell words were spoken
Not enough time to say good-bye
You were gone before we knew it
And only God knows why.
Our hearts still ache in sadness
And secret tears still flow
What it meant to lose you
No one will ever know.
But now, we know you want us
To mourn for you no more
To remember all the happy times
Life still has much in store.
Since you will never be forgotten
We pledge to you today
A hallowed place within our hears
Is where you will always stay
Við elskum þig og söknum þín Hrafnhildur okkar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 00:43
Svo reið!!!!!!!!!!!!!!
Ég skil ekki þetta líf !!
Ég bara get ekki kyngt því að systir mín sé dáin !!
Hrafnhildur... dáin?! Hvernig getur þetta verið satt??!!
argggg hvað þetta er ólýsanlega vont og sárt!!
Hvernig á ég að geta farið í gegnum lífið án hennar, án systur minnar?! Það vantar hluta af mér og ég get aldrei fengið hann aftur.
Afhverju lenti hún í þessum hörmungum? Hvernig er hægt að taka lífið frá henni? Hún átti eftir að gera svo margt í lífinu, átti eftir að eignast börn og mann, eldast með okkur hinum! Ég er svo reið inní mér að ég er að springa!!
Ég vil ekki trúa þessu en neyðist samt til þess, mér finnst heimurinn vera að hrynja ofan á mig og ég er svo bjargarlaus að geta ekki bara fengið systur mína til baka!
Afhverju misstu mamma og pabbi barnið sitt? og hvað þá á þennan hátt!! Afhverju missti amma barnabarnið sitt, sem var henni sem dóttir?
Hefur fjölskyldan ekki kvalist nóg???
Það var allt orðið svo gott, við Danni tókum saman og við vorum öll svo hamingjusöm. Svo gerist þessi harmleikur, að Hrafnhildur sé dáin!
Hún fór út og ætlaði sér stóra hluti, og kemur heim í kistu... og maður situr eftir með endalausar spurningar en fær engin svör.
Mig langar svo að geta fengið hana til baka en get það ekki, sama hvað ég geri!
Ég veit ekki hvernig maður á að komast í gegnum þetta en ég er að reyna mitt besta til að halda andlitinu, en svo kippist maður inní raunveruleikann og finnur hryllilegasta sársauka sem ég hef á ævinni kynnst.
Ég er bara orðin hrædd við lífið, hrædd við dauðann... skíthrædd um að missa fleiri frá mér! Ég myndi bara ekki höndla það!
Ég vildi svo innilega óska þess að þetta væri bara ljót martröð sem ég myndi vakna upp af... en nei þetta er bara ljót martröð sem ég mun aldrei vakna upp af!
Ég mun þurfa lifa með þessu, en mun aldrei geta sætt mig við þetta! Ég trúi varla að ég sé að skrifa um að systir mín sé dáin... ég vil ekki að þetta sé satt!
Hvernig á ég eftir að geta lifað með því að systir mín hafi verið myrt á þennan ógeðslega hátt?
Það hefði verið öðruvísi ef hún hefði dáið vegns slyss eða sjúkdóms. Það hefði líka verið hryllilega erfitt en að vita til þess að hún hafi verið meidd, er bara erfiðara en ég get nokkurn tíman útskýrt! Ég ætla rétt að vona að sá sem gerði henni þetta finnist og að hann rotni í helvíti!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég elska þig Hrafnhildur mín,
vona svo innilega að þú sért hjá Ödda, afa og ömmu Hönnu og að þér líði vel þar sem þú ert.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2008 | 01:22
Ljóð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.10.2008 | 10:29
Í dag
Dagurinn í dag
er dagurinn þinn.
þú getur gert við hann
hvað sem þú vilt.
Gærdaginn áttir þú
Honum getur þú ekki breytt
Um morgundaginn veistu ekki neitt
En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar
Svo að einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2008 | 02:25
Friður á jörð, já takk!
Ég hef ekki margt að segja sem er prenthæft...
kannski líður mér bara eðlilega ílla miðað við aðstæður en guð hvað ég vona að mér fari að líða betur og að ég fari að sjá lífið í öðru ljósi en ég geri núna.
Hér er ljóð sem ég fann í einum kassanum sem Hrafnhildur átti. Svona var hún, vildi gera heiminn að betri stað fyrir okkur öll.
FRIÐUR Á JÖRÐ
Vinur minn hvar sem í heimi þú ert
heyrðu mitt ákall og liðsinntu mér.
Reynum að uppræta angur og kvöl
afnema stríðsins böl.
Stöndum öll saman og störfum sem eitt
stefnunni etv. getum við breytt
smíðum úr vopnunum verkfæri þörf
verum í huga djörf.
Burt með hræðslu sem byrgð er inni
burt með hatrið úr veröldinni
burt með sprengjur sem brenna svörð
biddu með mér um frið á jörð.
frið á jörð, já frið á jörð.
Berum öll saman upp bænina um frið,
bænina einu sem nú þekkjum við.
Bænina einu sem bjargað fær
barninu frá í gær.
Hér er minningargreinin sem ég skrifaði um systur mína.
Elsku Hrafnhildur Lilja, fallega systir mín. Þú sem elskaðir lífið og lifðir því til fulls ert nú látin langt fyrir aldur fram. Ég er enn að átta mig á því sem gerst hefur og skil ekki hvernig nokkur maður gat tekið lífið frá þér á þennan hræðilega hátt. Ég er reið og sár og hjarta mitt yfirfullt af sorg.
Tveimur vikum fyrir andlát þitt sátum við hvor sínum megin í heiminum með tölvurnar okkar í fanginu, spjölluðum á Skype og horfðum hvor á aðra. Þú sagðir mér frá lífi þínu í útlöndum og þú brostir þínu fallega brosi og varst svo ánægð. Ég sagði þér fréttir að heiman og við enduðum samtalið með því að segja hvor annari hversu vænt okkur þætti hvorri um aðra. Mikið þykir mér vænt um þetta samtal og ég mun varðveita þessa minningu í hjarta mínu þar til við hittumst á ný.
Við vorum orðnar nánar og góðar vinkonur, gátum talað um allt. Þú varst hreinskilin þegar ég þurfti á því að halda, sparaðir ekki hrósið þegar þér fannst ég gera góða hluti og sagðir mér óspart hvað þér þótti vænt um mig og Líneyju Mist, litlu frænku þína.
Við áttum svo góðar stundir saman áður en þú lagðir af stað út í hinn stóra heim. Þið Líney Mist skemmtuð ykkur konunglega og hún horfði á þig aðdáunaraugum. Það var erfitt fyrir þig að kveðja hana og ófá tárin sem runnu niður kinnar okkar þegar við kvöddumst. Mér fannst einhvernvegin einsog ég ætti aldrei eftir að sjá þig framar, en reyndi að trúa því að við myndum hittast einhvers staðar á sólarströnd í lok þessa árs eða byrjun þess næsta.
Þú skildir margt gott eftir þig elsku Hrafnhildur, þú kenndir mér að trúa á sjálfa mig og þú kenndir mér svo margt sem ég mun nýta mér í lífinu. Ég mun ylja mér við allar góðu minningarnar þegar sorgin er að yfirbuga mig.
Líney Mist man vel eftir þér og ég sagði henni að núna værir þú fallegur engill sem vekti yfir okkur. Hún veit að þú lifir í hjörtum okkar og nú er bangsinn sem þú bjóst til handa henni í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Ég mun halda minningu þinni lifandi og segja henni reglulega frá þér, hún mun alltaf vita hversu yndislega móðursystur hún átti.
Ég vona og trúi að nú sértu hjá Ödda frænda, afa Krumma, ömmu Hönnu Stellu og öllum þeim sem við höfum misst frá okkur. Þú saknaðir þeirra svo sárt og ég trúi að þið séuð nú öll saman og eigið góðar stundir.
Lífið verður aldrei eins án þín og ég mun aldrei sætta mig við þetta, en ég mun gera mitt besta til að vera hamingjusöm og gera góða hluti í lífinu... því að ég veit að þú hefðir viljað það. Ég trúi að sál þín lifi og að ég eigi eftir að hitta þig aftur.
Elsku systir mín, þúsund þakkir fyrir allt.
Ég elska þig og mun alltaf sakna þín.
Þín systir Hanna Stella Georgsdóttir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.10.2008 | 23:31
......
Vil bara segja að við ætlum ekki að halda uppá afmælið hennar Líneyjar á laugardag einsog við ætluðum, það verður á þriðjudaginn 14. okt, á afmælisdaginn hennar. Bara að láta vita svo að það verði enginn misskilningur. Valdimar frændi sem er að læra bakarann ætlar að baka rosa flotta prinsessuköku, svona barbie. Hann er rosa klár að gera tertur. Takk Valdi okkar.
Alvilda ætlar að koma til okkar á morgun og við ætlum að baka eitthvað gómsætt fyrir afmælið og baka líka pönnukökur til að borða á morgun, Líney eeeeeeeelskar pönnsur með sykri. Svo ætlum við að fara í gegnum fleira dót og föt sem Hrafnhildur átti... frekar erfitt að gera það samt. Það verður voða gott að hafa Alvildu hjá okkur, hún er svo yndisleg. Skrifaði minningargrein sem ætti að birtast í morgunblaðinu fljótlega. Æji þetta er allt svo erfitt eitthvað.. en ég held að við séum samt nokkuð sterk öll... eða þetta er svona upp og niður. Get greinilega ekki útskýrt hvernig mér líður, enda veit ég það varla sjálf.
Skrifa meira seinna,
góða nótt.
Hanna Stella.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)








